Ráðgjöfin byggist m.a á samtalsaðferð sem hjálpar foreldrum að ígrunda og sjá áskoranir sínar frá mismunandi sjónarhornum, setja sér markmið og leita leiða sem henta þeim og samræmast þeirra gildum í uppeldinu. Ásamt öðrum leiðum sem styðja við foreldra og þeirra velferð svo sem að vingast við sjálfan sig og taugakerfið með sjálfsvinsemd og kortleggingu á taugakerfi sínu.
Fyrsti tíminn fer alltaf í að kynnast þér betur og finna hvaða áherslur munu henta þér í þjónustunni
Þú getur bókað tíma hjá Elsu eða Kristínu á www.noona.is/tengslasetur